Sýklalyfjaónæmi ekki á niðurleið

Í skýrslunni sem kom út í gær kemur fram að …
Í skýrslunni sem kom út í gær kemur fram að aukið sýklalyfjaónæmi mælist í bakteríum sem smitast á milli dýra og manna, eins og salmonellu og kampýlóbakter. Mynd úr safni.

Sýklalyfjaónæmi er ekki á niðurleið í Evrópu, þetta kemur fram í sameiginlegri skýrslu Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) og Sóttvarnarstofnunar Evrópu (ECDC), sem greint er frá á vef Matvælastofnunar.

Í skýrslunni sem kom út í gær kemur fram að aukið sýklalyfjaónæmi mælist í bakteríum sem smitast á milli dýra og manna, eins og salmonellu og kampýlóbakter. Er skýrslan, sem er samantekt á niðurstöðum ársins 2017, sögð sýna að mikið verk sé fyrir höndum í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi „og nauðsynlegt að vinna að því með þverfaglegu samstarfi undir formerkjum „Ein heilsa“ (One Health).“

Við upplýsingasöfnun var áhersla lögð á vöktun sýklalyfjaónæmis í bakteríum úr svínum og nautgripum með sýnatökum við slátrun og í kjöti á markaði og voru niðurstöðurnar bornar saman við niðurstöður á sýklalyfjaónæmi í salmonellu og kampýlóbakterstofnum úr fólki og þróun á milli ára. 

Flestar salmonellusýkingar í fólki ganga venjulega yfir án meðhöndlunar með sýklalyfjum. Í sumum tilfellum getur þessi meltingarfærasýking verið lífshættuleg ef bakterían dreifir sér um blóðið í  önnur líffæri og meðhöndlun með sýklalyfjum er nauðsynleg. Aukning á ónæmi Salmonella stofna gegn mikilvægum sýklalyfjum eins og flúórókínólónum er þess vegna áhyggjuefni. Flest lönd tilkynntu um aukningu á ónæmi Salmonella typhimurium-stofna í fólki gegn flúórókínólónum, en hérlendis voru allir 14 stofnarnir sem prófaðir voru næmir fyrir lyfi í þessum lyfjaflokki, að því er segir í frétt MAST.

Um 40% S. typhimurium-stofnanna í Evrópu voru fjölónæmir og yfir 64% S. typhimurium-stofna í svínaskrokkum við slátrun voru fjölónæmir. Hérlendis hefur þessi stofn hins vegar ekki fundist í svínaskrokkum eftir 2014. Einfasa stofn (monophasic) Salmonella typhimurium, sem hefur á skömmum tíma orðið ein algengasta sermisgerð í allmörgum dýrategundum og í sýkingum í fólki, reyndist fjölónæmur eða í u.þ.b. 80% tilvika  í fólki og um 77% tilvika á svínaskrokkum við slátrun. Eitt tilfelli af slíkum stofni, sem reyndist ónæmur fyrir tveimur sýklalyfjaflokkum, greindist í svínaskrokki hér á landi.

Í öllum löndum nema á Íslandi, Danmörku, Írlandi, Noregi og Bretlandi voru Campylobacter jejuni-stofnar úr fólki með háa eða mjög háa tíðni ónæmis gegn cíprófloxacín-sýklalyfinu. „Í þeim löndum er ekki lengur hægt að nota þessi sýklalyf í venjubundinni meðferð sýkinga sé hún nauðsynleg,“ segir í frétt MAST sem kveður ónæmi Campylobacter  jejuni-stofna gegn cíprófloxacín hérlendis hafa aukist undanfarin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert