Sérstaða borgarinnar býður upp á lausnir í kjaraviðræðum að mati Eyþórs Laxdal Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Flokkurinn mun leggja fram tillögu í fjórum liðum á borgarstjórnarfundi á morgun sem innlegg borgarinnar í yfirstandandi kjaraviðræður.
Samkvæmt tillögunum vill borgarstjórnarflokkurinn að útsvarsprósenta í Reykjavík verði lækkuð úr 14,52% niður í 14% á næsta ári. Með breytingunni færi útsvarsprósentan úr því að vera sú hæsta í fjórða hæsta yfir öll sveitarfélög á landinu.
„Þegar stærsta sveitarfélagið er með hæsta útsvarið ætti að vera svigrúm til lækkunar,“ segir Eyþór í samtali við mbl.is. Áætlaður kostnaður borgarinnar á þessu ári svo að tillagan verði að veruleika á næsta ári er 1,9 milljarðar. Aðgerðin verður að öðru leyti fjármögnuð með bættum innkaupum borgarinnar. „Bara fjárfestingarnar á ári eru 20 milljarðar og við höfum séð að það hefur ekki verið mikið aðhald í mörgum verkefnum. Það er hægt að gera mikið í innkaupum borgarinnar, um það eru flestir sammála, og við teljum að það sé besta leiðin.“
Önnur tillagan felur í sér að lækka rekstrargjöld heimilanna, sem nemi um 36 þúsund krónum á heimili í borginni að jafnaði á ársgrundvelli. Lagt er til að fjármagna aðgerðina með breyttum arðgreiðsluáformum Orkuveitu Reykjavíkur, með því að falla frá helmingi arðgreiðslna Orkuveitunnar.
Til viðbótar er lagt til að borgin tryggi hagstætt húsnæði og að samið verði við ríkið um kaup á Keldnalandi og á svæðinu verði farið í tafarlausa uppbyggingu með áherslu á hagkvæmt húsnæði. Þá verði fallið frá sérstökum innviðagjöldum og byggingarréttargjöldum stillt í hóf.
Eyþór telur að borgin hafi fjárfest í lóðum á of dýrum svæðum síðustu ár og því þurfi að breyta. „Borgin þarf fyrst og fremst að hafa lóðir á hagstæðu verði. Sú áhersla sem hefur verið, að byggja upp á dýrum þéttingasvæðum, leiðir til þess að það verða til dýrar íbúðir, en það vantar líka hagstæðar íbúðir.“
Aðspurður hvort sveitarfélögin ættu almennt að koma með innlegg í kjaraviðræður segir Eyþór: „Sum geta það, önnur ekki. En það skiptir langmestu máli hvað borgin gerir varðandi það að hafa ekki útsvarið hærra heldur en hinir, varðandi það að vera ekki með skort á byggingalandi og að Orkuveitan sé hófleg.“
Tillögurnar verða, sem fyrr segir, lagðar fram á fundi borgarstjórnar á morgun. Eyþór er bjartsýnn á að sátt náist um tillögurnar, að minnsta kosti hluta þeirra. „Þetta eru allt jákvæðar tillögur. Nú hefur borgarstjóri hafnað því að lækka útsvar en hann hefur tækifæri á að styðja hina þættina.“