Sigurvegarinn hrifinn af íslenska hráefninu

Ítalinn Nicola Fanetti var útnefndur besti kokkur Food & Fun-hátíðarinnar 2019 sem lauk í gær, en hann var gestakokkur á veitingastaðnum Essensia við Hverfisgötu.

Hákon Már Örvarsson, matreiðslumaður og eigandi staðarins, segir í Morgunblaðinu í dag, að Fanetti hafi passað vel inn í hugmyndafræði staðarins.

„Við fengum hann til okkar í gegnum meðmæli frá dönskum matarbloggara sem hefur tengsl við hátíðina. Okkur fannst þetta vera mjög flott pörun við okkar veitingastað, og það gekk svona prýðilega vel,“ segir Hákon. En hvað var það við matseðilinn sem Fanetti setti saman sem þótti skara fram úr?

Við þeirri spurningu fæst svar í samtal við Hákon Má í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert