Vel gekk að ná álft sem fest hafði dós í goggi sínum þegar gerður var út björgunarleiðangur nú í hádeginu. Að sögn Ólafs Nielsen, fuglafræðings hjá Náttúrufræðistofnun, var álftin aðframkomin og hafði lagst niður til að deyja þegar björgunarmenn komu á staðinn.
Álftin, sem hafðist við á Urriðakotsvatni, hafði verið með gogginn fastan í dósinni í a.m.k. tvær vikur og hafa íbúar í hverfinu haft talsverðar áhyggjur af að henni, en Linda Hrönn Eggertsdóttir, hjúkrunarfræðingur og íbúi í Urriðaholti ræddi í gær við mbl.is um tilraunir sínar til að fá aðstoð fyrir álftina.
Hún var örmagna og deyjandi þarna,“ segir Ólafur og því ljóst að ekki hefði mátt tæpara standa, en fenginn var maður með bát til að sigla á eftir álftinni.
„Hún var aðframkomin og þess vegna náðum við henni fljótt og erum nú komin með hana í Húsdýragarðinn.“
Álftin, sem er með sár í goggi mun dvelja í Húsdýragarðinum á meðan hún nær heilsu. „Við bárum á hana sótthreinsandi krem og það er verið að setja hana í búr,“ segir Ólafur og kveðst bjartsýnn á að álftin nái sér að fullu. „Hún er í góðum holdum,“ bætir hann við. „Þannig að þeir hugsa vel um hana.“
Ólafur segir mál álftarinnar því miður ekki vera einsdæmi, en iðulega berast til að mynda fréttir af fuglum sem hafa fest sig í plastrusli. Fyrir tveimur eða þremur árum rataði til að mynda himbrimi á Hafravatni í fréttirnar sem við eltum í tvo eða þrjá daga, en það var girni fast í honum.“