Loftgæði á Akureyri hafa verið mjög slæm það sem af er þessum degi og mældist mesti styrkur svifryks 184 µg/m³ við Strandgötu klukkan 10 í morgun. Kalt og stillt er í veðri og margir eru á ferli í bænum, gangandi og akandi, í tilefni öskudags.
Á loftgæðavef Umhverfisstofnunar kemur fram að loftgæði byrjuðu að versna um klukkan átta í morgun og náði styrkur svifryks hámarki um tíuleytið. Örlítið hefur dregið úr styrknum síðustu klukkutíma en loftgæði mælast enn mjög slæm.
Þegar styrkur svifryks fer yfir 150 µg/m³ geta áhrifin náð til allra, ekki bara þeirra sem eiga við vandamál í öndunarfærum að stríða.