Þingmenn hafa gert viðbrögð lögreglu við mótmælum hælisleitenda á Austurvelli í gær að umtalsefni á samfélagsmiðlum.
Til átaka kom á milli mótmælenda úr röðum flóttafólks og lögreglu á Austurvelli í gær og beitti lögregla m.a. piparúða gegn fólkinu. Þetta eru fjórðu mótmælin sem skipulögð hafa verið af flóttafólki á Íslandi og stuðningsfólki þess síðasta mánuðinn, en síðast var mótmælt við Útlendingastofnun í síðustu viku. Þar fóru mótmælin friðsamlega fram.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, greindi frá því á Facebook-síðu sinni í morgun að hann ætli að taka aðgerðir lögreglu gegn hælisleitendunum í gærkvöldi upp á nefndarfundi á þinginu í dag. Kolbeinn á sæti í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sem fundar í dag.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, gerir aðgerðir lögreglu sem m.a. beitti piparúða gegn mótmælendum, einnig að umtalsefni. „Í dag varð ég vitni að óvenju harkalegum viðbrögðum lögreglu, gagnvart hóp í afar veikri stöðu, sem hugðist tjalda á Austurvelli og vekja athygli á málstað sínum,“ segir Logi á Facebook-síðu sinni.
„Ég minnist ekki að tiltölulega fámennum mótmælum hafi áður verið mætt með slíkum aðgerðum. Ég sá a.m.k. ekkert sem gaf tilefni til slíks.
Þetta bætist við sífelldar þrengingar reglugerða dómsmálaráðherra í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og boðað frumvarps hennar um sömu hópa, sem eru mikil afturför.
Er nema von að maður spyrji á hvað leið stjórnvöld eru og hvort hún sé farin með samþykki VG?“