Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað dr. Silju Báru Ómarsdóttur, dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, sem formann Jafnréttisráðs. Hún tekur við af Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur.
Samkvæmt lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla skal Jafnréttisráð meðal annars vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum er tengjast jafnrétti kynjanna, samkvæmt tilkynningu.