Útlendingastofnun hefur ritað sveitarfélögum víða um land bréf til að kanna áhuga þeirra á að gera þjónustusamning við stofnunina um húsaskjól og félagslega þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Hælisleitendum hér á landi hefur fjölgað ört að undanförnu og þarf þess vegna að útvega fleiri búsetuúrræði fyrir þá, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag.
Fyrstu þrjá mánuði síðasta árs voru hælisleitendur 138, en nú eru þeir þegar orðnir 203. Fram kom á Alþingi að kostnaður við málaflokkinn gæti aukist um 2 milljarða á þessu ári.