Aukinn vandi vegna skyndilána

Ungt fólk á aldrinum 18-29 ára hefur ítrekað leitað til umboðsmanns skuldara vegna töku smálána. Segir umboðsmaður skuldara þetta verulegt áhyggjuefni. 

Umsækjendum sem óskuðu aðstoðar umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda fjölgaði um 6,5% á árinu 2018 miðað við árið á undan. Alls bárust 1.397 umsóknir til embættisins 2018 á móti 1.311 umsóknum árið 2017. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára eða úr 23% árið 2017 í 27,3% árið 2018.

Umboðsmaður skuldara hefur áður vakið athygli á vaxandi fjölda ungs fólks í vanda vegna töku skyndilána en UMS skilgreinir skyndilán sem lán sem tekin eru á vefsíðum eða með smáforritum í gegnum farsíma.

Lánin eiga það sameiginlegt að einfalt er að sækja um þau og þau eru afgreidd afar skjótt. Bæði getur verið um að ræða lán sem tekið er samhliða kaupum á vöru eða þjónustu en einnig lán þar sem ákveðin fjárhæð er lögð inn á reikning lántaka.

„Á árinu 2018 var hlutfall skyndilána 22% af heildarfjárskuldbindingu þessara einstaklinga og er það verulegt áhyggjuefni að enn skuli fjölga í hópi umsækjenda á aldrinum 18-29 ára,“ segir í tilkynningu frá UMS.

Hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma

Einstaklingar sem leita sér aðstoðar eiga það sameiginlegt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í töluverðar skuldir.

„Markaðssetning skyndilána er öflug og áberandi og er beint í miklum mæli að yngri kynslóðinni með áherslu á auðvelt aðgengi. Að mati UMS er mikilvægt að kannað verði hvort hægt sé að setja skorður við því hvernig þessi þjónusta er markaðssett.

Benda má á að í Noregi hafa t.d. verið settar strangar reglur um hvernig auglýsa má þjónustu sem þessa,“ segir í tilkynningu.

Ljóst er að einstaklingar geta auðveldlega tekið mörg lán á stuttum tíma hjá ólíkum þjónustuaðilum og þannig skuldsett sig langt umfram greiðslugetu, segir umboðsmaður skuldara.

„Með því að skrá skuldastöðu einstaklinga væri hægt að koma í veg fyrir að sami einstaklingur taki mörg lán hjá ólíkum aðilum með ofangreindum afleiðingum. Með aðgangi að slíkri miðlægri skrá gætu þeir sem veita skyndilán betur metið lánshæfi umsækjenda eins og kveðið er á um í lögum um neytendalán. Slík skráning myndi auk þess veita yfirsýn yfir umfang útlána af þessu tagi sem ekki er fyrir hendi í dag.“

Eru í meiri áhættu

Dæmin sýna að þeir sem taka skyndilán eru í meiri áhættu að lenda í alvarlegum greiðsluerfiðleikum. „Tryggja þarf að einstaklingar hafi forsendur til að taka upplýstar ákvarðanir í fjármálum. Með samvinnu mennta- og velferðarkerfis, fjármálafyrirtækja og fleiri aðila þarf að tryggja samræmda fjármálafræðslu barna og ungmenna og það þarf að byrja snemma.

Sameiginlegt markmið okkar ætti að vera að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji sitt fjárhagslega sjálfstæða líf með neysluskuldir á bakinu,“ segir enn fremur í tilkynningu frá UMS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka