„Við teljum að það hafi myndast góður umræðugrundvöllur, að því að gera kjarasamning,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Fyrirhuguðum verkföllum hótelstarfsmanna og rútubílstjóra sem átti að hefjast á miðnætti í kvöld og standa í alls 48 klukkustundir hefur verið aflýst. Var það niðurstaðan eftir fundahöld VR, Eflingar, VLFA, VLFG, LÍV og Framsýnar með Samtökum atvinnulífsins hjá sáttasemjara.
Halldór leggur áherslur á að tveggja sólarhringa verkfallinu sem átti að hefjast á miðnætti hafi verið aflýst.
„Nú munum við halda áfram að þroska þær hugmyndir sem fram hafa komið og geta orðið grundvöllur kjarasamninga. Mest er um vert að það takist vel til, til þess að byggja áfram undir þann lífskjarabata sem náðst hefur á undanförnum árum,“ segir Halldór Benjamín.
„Það er óvissa í hagkerfinu núna við sjáum það bæði á væntingum heimila og stjórnenda fyrirtækja auk þess sem útflutningsatvinnuvegirnir hafa orðið fyrir talsverðum skakkaföllum vegna loðnubrests og tvísýnnar stöðu flugrekstrar. Aðilar eru sammála um að nýta næstu daga og helgina til að ná samningum.“