Alls hafa tæplega 350 jarðskjálftar mælst í Öxarfirði það sem af er degi. Þeirra stærstur var skjálfti klukkan 7.18, sem mældist 2,7 að stærð.
Frá því hrinan hófst á laugardaginn hafa mælst átta skjálfar af stærðinni 3 og yfir. Stærsti skjálftinn mældist á miðvikudag, af stærðinni 4,2.
Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að henni hafi borist tilkynningar um að íbúar á Kópaskeri og í Kelduhverfi hafi fundið stærstu skjálftana. Áætlaður fjöldi skjálfta í hrinunni frá sjálfvirkum mælingum sé um 2.200 skjálftar frá því hún hófst.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í gær yfir óvissustigi vegna þeirrar jarðskjálftahrinu.