Fundi fulltrúa Air Lease corporation (ALC), eigenda tveggja Airbus-flugvéla sem WOW air var með á leigu, og Isavia lauk síðdegis án þess að niðurstaða fengist. Isavia kyrrsetti aðra vélina vegna skulda WOW air.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að fundurinn hafi verið fyrsta skref og farið hafi verið yfir málið. Til standi að fulltrúar ALC skoði vélarnar á Keflavíkurflugvelli og síðan verði viðræðunum haldið áfram einhvern næstu daga. Ekki liggi fyrir hvenær það verði.
Vélarnar sem ALC á og eru á Keflavíkurflugvelli eru TF-GPA og TF-SKY og var sú fyrrnefnda kyrrsett.
ALC er að stærstum hluta í eigu hins ungverskættaða Steven Udvar-Házy, en hann var í fyrra í 572. sæti á lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Voru eignir hans þá metnar á 430 milljarða.