Ekki fullnaðarsigur heldur vopnahlé

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir félagsmenn eiga síðasta orðið.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir félagsmenn eiga síðasta orðið. mbl.is/Hari

„Niðurstaðan í þessum viðræðum er ekki fullnaðarsigur heldur vopnahléslína milli stéttar verkafólks og stéttar auðmagnseigenda. Baráttan milli þeirra heldur áfram. Ég er sátt við að við höfum fengið fram grundvöll til þess að loka samningi eftir langar og strangar kjaraviðræður,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í fréttatilkynningu.

Efling og samflotsfélög í kjaraviðræðum hafa fallist á grundvallaratriði kjarasamnings við Samtök atvinnulífsins. Nefndarmenn samninganefndar Eflingar - stéttarfélags funduðu ásamt forystu félagsins í gærkvöld í húsakynnum ríkissáttasemjara þar sem rætt var ítarlega um inntak viðræðna síðustu daga og þann grundvöll sem þar hefur loks myndast. Þessi grundvöllur varð til í gegnum stífar viðræður Eflingar og samflotsfélaganna VR, LÍV, Framsýnar, VLFA og VLFG við Samtök atvinnulífsins síðustu daga.

Að höfðu samráði við félagsmenn ákvað formaður Eflingar að aflýsa verkfallsaðgerðum og vinna að lokagerð samnings. Mun sú vinna hefjast strax í dag, auk þess sem leitað verður eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum en aðkoma þeirra er mikilvægur fyrirvari um undirritun samnings þegar þar að kemur.

„Félagsmenn okkar hafa auðvitað síðasta orðið um hvort þeir samþykkja samning í atkvæðagreiðslu eða ekki. En ég held að með þessum samningsgrundvelli hafi náðst að koma til móts við kröfur okkar félagsmanna um lífskjarabót,“ segir Sólveig Anna enn fremur í fréttatilkynningu.

Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar sagði stálin stinn hafa mæst á lokametrum samningagerðarinnar. „Hér skipti miklu máli pressan sem verkfallsaðgerðir okkar sköpuðu, samtakamáttur félagsmanna og sá mikli meðbyr sem við höfum fundið í samfélaginu við kröfur Eflingar og bandalagsfélaga okkar,“ segir Viðar í tilkynningu.

Efling undirbýr nú áætlun um kynningu komandi samnings meðal félagsmanna, á félagsfundum og með kynningarefni. Trúnaður hvílir enn sem komið er um inntak viðræðna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert