Leit að hefjast fyrir norðan

Mynd úr safni björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri.
Mynd úr safni björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri. Vefur björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri

Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út fyrir norðan vegna Frakka sem vitað er að er einhvers staðar uppi á fjöllunum í Eyjafirði. Mjög slæmt veður er á þessum slóðum.

Að sögn Jóns Valdimarssonar, varðstjóra í lögreglunni á Akureyri, heyrðist síðast í manninum um klukkan hálftólf í gærkvöldi. 

Uppfært klukkan 7:35

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Eyjafirði eru á leið upp á hálendi til leitar að göngumanni. Aðstandandi mannsins hafði samband í nótt og sagði manninn í vandræðum, væri líklega búinn að tapa hluta af búnaði sínum og orðinn þreyttur og slæptur.

Unnið er að því að reyna að staðsetja það svæði sem maðurinn er á til að auðvelda leitaraðgerðir.

Uppfært klukkan 8:11

Maðurinn sem leitað er að á hálendinu ofan Eyjafjarðar ætlaði sér að ganga suður yfir hálendið á 2-3 vikum.

Búið er að komast að staðsetningu hans í fyrradag og fá munnlega lýsingu á því hvar hann var í gær. Er vonast til að þessar upplýsingar þrengi leitarsvæðið.

Þegar hann hefur samband við aðstandendur í nótt var hann búinn að missa frá sér sleðann með farangri sínum. Sagðist hann vera kaldur, uppgefinn og hræddur. Björgunarmenn leggja því allt kapp á að finna hann sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert