Íbúar í Seljahverfi eru ósáttir við vinnubrögð Reykjavíkurborgar vegna áætlana um byggingu búsetukjarna í hverfinu, án alls samráðs við íbúa.
Þá finnst þeim ekki hlustað á þau rök að annað búsetuúrræði við Rangársel, sem meðal annars hýsi öryggisvistun fyrir fanga, er staðsett í beinni sjónlínu við fyrirhugaðar framkvæmdir við Hagasel.
Traust íbúa í garð borgarinnar sé hrunið vegna ákvarðana sem eru sagðar teknar í skjóli nætur, að því er segir í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.