Guðni fundar með Pútín í Pétursborg

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra …
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra funduðu með Vladimír Pútín Rússlandsforseta fyrir tveimur árum. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sækir norðurslóðaráðstefnu, International Arctic Forum, í Pétursborg í Rússlandi dagana 9. og 10. apríl. Á ráðstefnunni mun Guðni m.a. taka þátt í pallborðsumræðum síðdegis á morgun ásamt Vladímír Pútín forseta Rússlands, Sauli Niinistö forseta Finnlands, Ernu Solberg forsætisráðherra Noregs og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.

Málstofan ber yfirskriftina Norðurslóðir – hafsjór tækifæra (The Arctic: An Ocean of Opportunity), að því er segir í tilkynnigu frá skrifstofu forsetans.

Þá mun Guðni einnig eiga fund með Pútín á miðvikudaginn 10. apríl. Fundinn situr einnig Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Fram kemur í tilkynningunni, að Guðni muni heimsækja Ríkisháskólann í Pétursborg að morgni miðvikudagsins 10. apríl. Hann mun eiga fund með rektor og flytja síðan opinberan fyrirlestur sem ber heitið “We all protest!” Diversity, critique and freedom as the essence of historical research.

Við háskólann er m.a. öflug norrænudeild sem stofnuð var að frumkvæði Míkhaíls Ívanovítsj Steblín-Kamenskíj árið 1958 en hann var mikilvirkur fræðimaður og þýðandi á vettvangi íslenskra fornbókmennta. Þá mun forseti einnig hitta að máli forystufólk á sviði viðskipta milli Rússlands og Íslands, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert