Bragi vann á afmælisdaginn

Bragi Þorfinnsson.
Bragi Þorfinnsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fjórða umferð Reykjavíkurskákmótsins var tefld fyrr í dag. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson fagnaði afmælisdegi sínum rækilega með góðum sigri á Norðmanninum Johan-Sebastian Christiansen.

Eftir nokkuð rólega byrjun virtist staðan á borðinu ekki bjóða upp á mikla sigurmöguleika. Bragi fann hins vegar sniðuga leið til að hrista upp í hlutunum þegar hann gaf biskup og riddara fyrir annan hrók þess norska. Tveir hrókar Braga gegn biskupapari og hrók Norðmannsins.

Aukinheldur átti Bragi sterk miðborðspeð sem voru til alls líkleg. Þegar leið á taflið urðu það hin sterku miðborðspeð sem tryggðu sigurinn.

Bragi og Hannes Hlífar Stefánsson eru efstir í mótinu með 3,5 vinninga af fjórum mögulegum ásamt nokkrum öðrum skákmönnum. Jóhann Hjartarson kemur skammt undan með þrjá vinninga en hann vann ungstirnið Vigni Vatnar Stefánsson í langri skák.

Sigurbjörn Björnsson sem fór mikinn í gær þurfti að játa sig sigraðan fyrir fyrrverandi Evrópumeistaranum Vladimir Potkin frá Rússlandi eftir góða baráttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert