„Þegar erfiðleikar sóttu að okkur tókst okkur að yfirstíga þá og leysa, en það er eitt sem hefur alltaf sameinað okkur: Norðurslóðir, og þær eru ekki að fara neitt.“ Þetta er meðal annars haft eftir Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, í tilkynningu frá skrifstofu Rússlandsforseta, eftir fund hans með Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í morgun. Forsetarnir sækja báðir norðurslóðaráðstefnu, International Arctic Forum, sem hófst á mánudag.
Pútín sagði gott samband hafa myndast með yfirvöldum í Rússlandi og norrænu ráðherranefndinni frá því að Ísland tók við formennsku í byrjun árs. Þá vakti Pútín athygli á því að í fyrra voru liðin 75 ár frá því að stjórnmálalegu sambandi var formlega komið á milli ríkjanna.
„Það er von mín að jákvæð samskipti okkar í gegnum tíðina geri okkur kleift að halda áfram á sömu braut, þrátt fyrir þá erfiðleika sem við ræddum yfir hádegisverðarfundi okkar í gær,“ er haft eftir Pútín í tilkynningu frá skrifstofu Rússlandsforseta.
Hvaða erfiðleika Pútín á við er ekki sérstaklega tekið fram, en haft er eftir Guðna að á fundi forsetanna í morgun, sem og á hádegisverðarfundi þeirra á norðurslóðaráðstefnunni í gær, hafi þeim tekist að ítreka mikilvægi þess að skapa víðfeðman samræðuvettvang um norðurslóðir.
Guðni þakkaði sömuleiðis fyrir hlýjar móttökur og uppbyggilega samræður við Pútín.