Kópavogur fær platínuvottun

Kópavogur er fyrsta íslenska bæjarfélagið sem fær vottun um að …
Kópavogur er fyrsta íslenska bæjarfélagið sem fær vottun um að bærinn uppfylli lífskjara- og þjónustustaðal World Council on City Data (WCCD), stofnunar sem heldur utan um samanburðarhæfar mælingar sveitarfélaga á alþjóðavísu. Haraldur Jónasson/Hari

Kópavogsbær hefur fengið vottun um að bærinn uppfylli lífskjara- og þjónustustaðal World Council on City Data (WCCD), stofnunar sem heldur utan um samanburðarhæfar mælingar sveitarfélaga á alþjóðavísu. Kópavogur er fyrsta íslenska bæjarfélagið sem fær slíka vottun. 

Í staðlinum eru 100 vísar, sem staðallinn skilgreinir hvernig beri að mæla. Vísarnir segja til um félagslegan, efnahagslegan og umhverfislegan árangur sveitarfélags. Með því að uppfylla staðalinn er Kópavogur orðinn hluti af hópi sveitarfélaga á alþjóðavísu sem öll mæla á sama hátt þessa 100 vísa og eru því samanburðarhæfir árangursmælar. Í tilkynningu frá bænum segir að Kópavogur hafi fengið platínuvottun fyrir að skila inn 97 vísum.

Kópavogsbær mun nýta mælingar úr staðlinum til að fylgjast með stöðu sveitarfélagsins á alþjóðavísu auk þess sem staðallinn nýtist til þess að fylgjast með stöðu mála á milli ára. Mælingar úr staðlinum munu einnig nýtast til að mæla framgang í innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi. 

Kópavogur hefur bæst í hóp borga og bæja sem mæla …
Kópavogur hefur bæst í hóp borga og bæja sem mæla lífskjör og þjónustu eftir staðli World Council on City Data. Kort/WCCD

„Hjá Kópavogsbæ höfum við undanfarin ár unnið markvisst að því að bæta mælingar á ýmsum þáttum í starfi sveitarfélagsins. Það nýtist okkur til að fylgjast betur með árangri af settum stefnum og markmiðum og gerir rekstur sveitarfélagsins betri,“ er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs, í tilkynningu.  

Dr. Patricia L. McCarney, framkvæmdastjóri WCCD, segir framúrskarandi að skrá 97 af 100 vísum og bendir á að óháðir vottunaraðilar hafi lofað vinnu bæjarins, nákvæmni og gagnaöflun. „Nálgun Kópavogsbæjar ætti að vera borgum um heim allan fyrirmynd að mati vottunaraðila,“ segir McCarney.

Í tilkynningu frá bænum kemur fram að Kópavogsbær er einnig gæðavottað sveitarfélag (ISO 9001) og hefur skoðað félagslegar framfarir í bæjarfélaginu með aðferðafræði vísitölu félagslegra framfara (e. Social Progress Index, SPI). Þá er Kópavogsbær í samvinnu við OECD um gerð mælikvarða sem nýta má við innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti síðastliðið haust að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í yfirstefnu bæjarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka