Strætó fellir niður ferðir

Strætisvagn á ferðinni.
Strætisvagn á ferðinni. mbl.is/Hari

Vegna slæmrar veðurspár hefur nokkrum ferðum Strætó verið aflýst, annars vegar á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði og hins vegar á milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Gul viðvörun er í gildi á miðhálendinu og á Suðurlandi en viðvörunin færist yfir á Snæfellsnes og Breiðafjörð eftir því sem líður á daginn.

Veðrið hefur áhrif á eftirtaldar leiðir Strætó:

Leið 51: Reykjavík – Höfn í Hornafirði

Ferðin kl. 13:00 frá Reykjvík til Hafnar í Hornafirði ekur aðeins að Hvolsvelli.

Ferðin kl. 11:55 frá Höfn til Reykjavíkur fellur niður.

Leið 57: Reykjavík - Akureyri

Ferðin kl. 16:20 frá Akureyri til Reykjavíkur fellur niður.

Ferðin kl. 17:30 frá Reykjavík til Akureyrar ekur aðeins að Bifröst ef veður leyfir.

Stjórnstöð Strætó fylgist grannt með veðurspá þegar líður á daginn, að því er segir í tilkynningu. Farþegum er bent á að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Strætó eða Twitter-síðu Strætó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert