Brýrnar eru helsti veikleiki vegakerfisins á Suðurlandi, það blasir við. Þetta segir Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur í samtali við mbl.is. Eins og RÚV greindi frá í gær mun Ólafur sjá um úttekt á umferðaröryggi á Suðurlandi, í umboði sveitarfélaganna Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Mýrdalshrepps.
Kveikjan að vinnu við úttektina er slysið sem átti sér stað á brúnni yfir Núpsvötn í desember, þegar bifreið fór yfir vegrið á brúnni og þrír farþegar biðu bana. Eins og víða kom fram á þeim tíma var öryggi á brúnni ábótavant. Hins vegar hefur ekkert verið aðhafst síðan til að auka öryggi brúarinnar segir Ólafur.
Átján manns létust í umferðinni í fyrra, þar af átta á Suðurlandi, og var það „fjórða versta ár frá upphafi“. Enginn hefur hins vegar látist í umferðinni það sem af er þessu ári. Ólafur segir það vitanlega vera gleðifréttir, en það segi þó ekki endilega alla söguna. „Erlendis horfa menn alltaf á látna og alvarlega slasaða saman. Ég er að reyna að venja menn á það,“ segir Ólafur og segist sjálfur ekki vita hversu margir hafa slasast alvarlega í umferðinni á þessu ári. „Kannski er sú tala hærri en á sama tíma í fyrra bara af því að fleiri hafa lifað af.“
Að auki við brýrnar er ýmislegt sem varðar umferðaröryggi sem þarf að huga að á Suðurlandi, að mati Ólafs. Yfirborðsmerkingar þurfi að bæta og bregðast þurfi við mikilli umferðaraukningu. „Það sem á kannski sérstaklega við um Suðurlandið er að Íslendingar eru orðnir í minnihluta,“ segir Ólafur og bætir við: „Það þýðir að við þurfum að horfa á vegina með nýjum augum. Þar er kominn nýr kúnnahópur sem hugsar öðruvísi en við. Við kunnum t.a.m. að fara yfir einbreiðar brýr.“
Ólafur hefur unnið við sambærilegar umferðaröryggisúttektir víðar á síðustu árum, og hafa þær að hans sögn borið góðan árangur. Hann hafi fyrir þremur árum gert úttekt fyrir sex sveitarfélög í Árnessýslu, sem þau hafi svo farið með fyrir samgönguyfirvöld og krafist úrbóta. Það hafi haft áhrif og því hafi fleiri sveitarfélög viljað ráðast í sambærilegar aðgerðir.