Dýpkunarskipið Dísa er á leið í Landeyjahöfn til að dýpka höfnina en eins og kom fram fyrr í dag er dýpið í höfninni minnst um 3,7 metrar en Herjólfur ristir 4,2 metra.
Ljóst er að Dísa, dýpkunarskip Björgunar, þurfi einhverja daga til dýpkunar og gagnrýndi Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hægagang Björgunar í samtali við Eyjar.net.
„Við erum komin í síðustu viku apríl-mánaðar og enn bíðum við þess að höfnin opni. Það er sérstaklega bagalegt þegar að gluggi opnast til dýpkunar - þá eru menn ekki einu sinni á tánum - tilbúnir með áhöfn,“ var meðal annars haft eftir Írisi.
Lárus Dagur Pálsson, framkvæmdastjóri Björgunar, sagði í samtali við mbl.is að aðstæður væru krefjandi en menn væru klárir og hafist yrði handa við að dýpka höfnina.
„Mér sýnist útlitið vera þokkalegt næstu daga og vonandi næst sá árangur sem þarf til að hægt að sé að opna höfnina fyrir Herjólfi,“ sagði Lárus.