Hjón á Suðurnesjum voru í dag sakfelld fyrir gróf kynferðisbrot gegn dóttur konunnar og dóttur sinni í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn var dæmdur í 6 ára fangelsi og konan var dæmd í 5 ára fangelsi, samkvæmt Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara, en RÚV greindi fyrst frá niðurstöðu dómsins, sem hefur ekki verið birtur á vef dómstólsins.
Kolbrún segir í samtali við mbl.is að þessi niðurstaða sé í ágætu samræmi við þær refsikröfur sem ákæruvaldið gerði í málinu. Hún segist ekki vita hvort hjónin hyggist áfrýja niðurstöðu héraðsdóms til Landsréttar, en þau voru bæði úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald eftir að dómurinn var kveðinn upp.
Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi allt frá því í júlí í fyrra. Þá var konan líka hneppt í tveggja vikna varðhald, en síðan sleppt þar til ákæra var gefin út í málinu í október. Þá var hún aftur hneppt í varðhald, en héraðssaksóknari taldi að ef brot hennar væru jafn alvarleg og henni væri gefið að sök myndi það bæði valda hneykslun og særa réttarvitund almennings gengi hún laus.
Við þingfestingu málsins í október játuðu hjónin brot sín að hluta, en í ákæru kom fram að þau hefðu brotið kynferðislega gegn dóttur konunnar í sameiningu í febrúar í fyrra og tekið bæði hreyfi- og ljósmyndir af brotunum. Dóttur konunnar voru dæmdar 2,5 milljónir króna í miskabætur.
Hjónin voru einnig í ákæru sögð hafa framið brotin að dóttur sinni viðstaddri, þannig að hún horfði á foreldra sína brjóta gegn hálfsystur sinni. Með því voru hjónin sögð hafa ógnað velferð stúlkunnar á alvarlegan hátt.
Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni á heimili fjölskyldunnar 807 ljósmyndir og 29 myndskeið sem sýndu börnin á kynferðislegan hátt.
Einnig var hann ákærður fyrir brot á vopnalögum þar sem á heimili hjónanna fannst mikið af eggvopnum, meðal annars 50 sentimetra langt sverð, butterfly-hnífur, tveir stunguhnífar, kasthnífur og slöngubyssa.