Rýrnun viðskiptakjara að undanförnu bætist við samdrátt í ferðaþjónustu og loðnubrest. Samanlögð áhrif eru líkleg til að koma niður á kaupmætti íslensks almennings í vörum og þjónustu, þrátt fyrir boðaðar nafnlaunahækkanir.
Þetta er niðurstaða greiningar Yngva Harðarsonar, hagfræðings og framkvæmdastjóra Analytica, fyrir Morgunblaðið.
Samkvæmt lífskjarasamningunum eiga launþegar að fá hagvaxtarauka á samningstímanum.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, útlit fyrir samdrátt í hagvexti í ár.