Íslenski framleiðandinn Good Good náði á topp vinsældalista yfir mest seldu sulturnar hjá bandarísku vefversluninni Amazon nýverið.
Framkvæmdastjóri Good Good segir vinsældirnar skýrast af heilsuvakningu á heimsvísu en sultan er framleidd án viðbætts sykurs, að því er fram kemur í umfjöllun um viðbit þetta í Morgunblaðinu í dag.