Stjórn Valitor ætlar að fara yfir dómsniðurstöðu héraðsdóms í máli fyrirtækisins og Sunshine Press Productions (SSP) og Datacell og mun „væntanlega áfrýja málinu til Landsréttar“ að sögn Jónínu Ingvadóttur, deildarstjóra í markaðsdeild Valitor.
Niðurstaða um það mun liggja fyrir í næstu viku, samkvæmt svari Jónínu við fyrirspurn mbl.is.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Valitor til að greiða SSP og Datacell samtals 1,2 milljarða króna í bætur fyrir að hafa lokað greiðslugátt fyrirtæka fyrir Wikileaks í 617 daga.
„Við mat á fjárhæð tjóns stefnenda lítur dómurinn til þess hve lengi lokun stefnda varði, 671 dag, og til þess hve mikill fjöldi greiðslna barst í gegnum greiðslugátt stefnda þann stutta tíma sem hún var opin og hve háar fjárhæðirnar voru að meðaltali,“ segir í dómi héraðsdóms.
Áður hafði komið fram að forráðamenn fyrirtækjanna sem fóru með sigur af hólmi í málinu fyrir héraðsdómi, væru að íhuga að áfrýja niðurstöðunni, þar sem 1,2 milljarðar króna væru ekki fullnægjandi bætur fyrir það tjón sem Valitor hefði ollið.
Valitor er í eigu Arion banka, sem sendi frá sér afkomuviðvörun eftir að dómur í málinu féll, síðasta miðvikudag.