Alls bárust 40 athugasemdir vegna fyrirhugaðrar byggingar íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Hagaseli í Breiðholti. Frestur til að senda inn athugasemdir um framkvæmdina til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar var til 16. apríl síðastliðinn.
Athugasemdirnar eru margar og ljóst að það tekur talsverðan tíma að fara yfir þær, að sögn Berglindar Magnúsdóttur skrifstofustjóra öldrunar- og húsnæðismála velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Hún ítrekar að þetta yrði búsetuúrræði fyrir geðfatlað fólk en ekki fólk í fíknivanda. Velferðarsvið hefur óskað eftir fjölda lóða hjá umhverfis- og skipulagsviði borgarinnar því byggja þarf húsnæði fyrir á annað hundrað fatlaða einstaklinga á næstu 10 árum.
Umhverfis- og skipulagsráð fer yfir athugasemdirnar og að því loknu verður fundur með velferðasviði. Ekki liggur fyrir hvenær sá fundur verður á dagskrá.
Að minnsta kosti 800 manns skrifuðu undir mótmælalista gegn íbúðakjarnanum.