Leggst í norðaustankalda

mbl.is/​Hari

Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og fremur hýtt í veðri í dag, síðdegisskúrir sunnan- og vestanlands og þokuloft við austurströndina, en léttir til fyrir norðan. 

Á morgun, á baráttudegi verkalýðsins, leggst í norðaustankalda, sem dregur mun kaldara loft yfir landið og mun haldast þannig nokkra daga á eftir. Hiti fer því að falla smám saman, einkum á norðaustanverðu landinu þar sem geta komið él um kvöldið. Annars skýjað að mestu á morgun og skúrir víða um land, einkum síðdegis, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðaustlæg átt, 5-10 m/s og dálítil rigning S- og V-lands, annars hægari og þurrt, en þokuloft eða súld austast. Hægviðri eftir hádegi. Skýjað með köflum á Suður- og Vesturlandi og skúrir síðdegis, léttir víða til fyrir norðan og austan, en þokuloft úti við ströndina með kvöldinu. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast V-til.
Norðaustlæg átt, 5-10 m/s og víða skúrir á morgun og kólnar í veðri, stöku él og kringum frostmark NA-til um kvöldið.

Á miðvikudag:

Norðaustan 5-10 m/s og lítils háttar væta N- og A-lands með hita 2 til 7 stig. Annars hæg breytileg átt, skýjað að mestu og stöku síðdegisskúrir með hita að 14 stigum. 

Á fimmtudag:
Norðaustlæg átt, 8-13 m/s og úrkomulítið, en skúrir eða dálítil rigning SV-lands. Hiti 0 til 7 stig, svalast á NA-landi. 

Á föstudag og laugardag:
Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s skýjað með köflum, en þurrt að kalla. Hiti 2 til 8 stig að deginum. 

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir austan- og suðaustanátt með vætu á S-verðu landinu, en þurrviðri fyrir norðan og heldur hlýnandi veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert