„Við erum ekki búnir að ákveða það,“ segir Magnús Óskarsson, lögmaður Vals Lýðssonar, spurður hvort þeir hyggist óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar. Landsréttur þyngdi dóm yfir Val úr sjö árum í 14 fyrir að hafa orðið bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, að bana á heimili Vals að Gýgjarhóli II í Bláskógabyggð á síðasta ári.
Þeir hafa fjórar vikur til að biðja um slíkt leyfi en dómur Landsréttar féll 3. maí. Magnús vildi ekki tjá sig frekar um dóminn að svo stöddu.
Ríkissaksóknari áfrýjaði dómi héraðsdóms til Landsréttar og fór fram á 16 ára fangelsi yfir Val.
Auk fangelsisdóms var Valur dæmdur til að greiða fjórum börnum Ragnars þrjár milljónir, sem er sama upphæð og Valur hafði verið dæmdur til að greiða þeim í héraðsdómi. Þá var hann dæmdur til að standa straum af útfararkostnaði.
Valur ákvað við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti að tjá sig ekki og kom það ákæruvaldinu í opna skjöldu.