MTV hefur valið Secret Solstice sem eina af fimm bestu og áhugaverðustu tónlistarhátíðunum í Evrópu í sumar og hyggst senda tökulið til landsins.
Víkingur Heiðar Arnórsson, framkvæmdastjóri Secret Solstice, segir að hliðarviðburðir hátíðarinnar, það er tónleikar inni í ísgöngunum í Langjökli og í Raufarhólshelli, veki mestan áhuga hjá MTV og er það líklega íslenska náttúran, í bland við listamennina, sem trekkir að.
Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni eru Black Eyed Peas, Robert Plant, Martin Garrix, Rita Ora, Patti Smith og Pussy Riot.
Ásamt því að fylgjast með Secret Solstice í Laugardalnum í júní hefur MTV valið Exit-tónlistarhátíðina í Serbíu, Isle of MTV á Möltu, Ultra Europe-hátíðina í Króatíu og tónlistarhátíðina Sziget í Ungverjalandi sem áhugaverðustu tónlistarhátíðir sumarsins í Evrópu. Mun sjónvarpsstöðin gefa VIP-miða á hátíðirnar og hægt er taka þátt hér.
Nokkur óvissa hefur verið um mál Secret Solstice-hátíðarinnar, sem haldin hefur verið í Laugardal undanfarin ár. Nýir rekstraraðilar, Live Events ehf., koma nú að rekstri hátíðarinnar, en fyrri rekstraraðilar hafa verið sakaðir um vanefndir á gerðum samningum.
Víkingur segir að skipuleggjendur hafi unnið að samningsdrögum við borgina síðustu sex mánuði. Í gildi er fimm ára samningur en sá háttur hefur verið hafður á að gera nýjan samning fyrir hverja hátíð með þeim skilyrðum að forsvarsmenn hátíðarinnar hafi m.a. staðið skil á greiðslum.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, segir í samtali við mbl.is að samningaviðræður gangi vel og að fátt ætti að koma í veg fyrir að hátíðin fari fram í Laugardalnum. Ekki er ljóst hvenær borgarráð mun fjalla um leyfisveitinguna, en málið er að minnsta kosti ekki á dagskrá borgarráðsfundar sem fer fram á morgun.