Allt tiltækt slökkviliðslið höfuðborgarsvæðisins er enn að störfum í Seljaskóla þar sem eldur kviknaði laust eftir miðnætti í nótt. Búið er að slökkva eldinn og vinna slökkviliðsmenn að því að ná stórum járnplötum af þaki hússins til að slökkva í glæðum.
Þakið á húsinu féll á fimmta tímanum og hafa slökkviliðsmenn því ekki getað verið inni í skólanum eða ofan á þakinu til að sinna slökkvistarfi. „Við komumst inn í byrjun en þegar eldurinn varð orðinn það mikill að þakið fór að síga sendum við alla út,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri, í samtali við mbl.is.
Slökkviliðsmenn á vettvangi hafa notað körfubíla til að komast að þakplötunum ofan frá og rífa þær þannig af. „Þetta eru langar og stórar plötur og þær eru allar skrúfaðar í þannig það hefur gengið frekar hægt. Við erum að reyna að fá tæki til að rífa járnaplötur og reyna að komast í þessar glæður sem eru undir. Þetta verður einhver vinna þarna á staðnum áfram,“ segir Sigurjón, sem býst við því að vinna á vettvangi standi yfir að minnsta kosti til hádegis.
Ekki er hægt að segja til eldsupptök að svo stöddu, eða hvort einhver tengsl eru á milli brunans í nótt og þegar eldur kom upp í skólanum í mars síðastliðnum.
Að öðru leyti var nóttin róleg hjá slökkviliðinu, en alla jafna er mikið að gera í sjúkraflutningum aðfaranótt sunnudags. „Nóttin slapp ágætlega til, á meðan þetta gekk að mestu yfir var nokkuð róleg og nóttin var frekar róleg í sjúkraflutningum miðað við laugardagskvöld, þannig það hjálpaði. En það var tímabil í nótt þar sem þetta var orðið mjög þröngt,“ segir Sigurjón.