Átta þingmenn úr röðum Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli utanríkisráðherra að láta kanna viðhorf almennings í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum til áframhaldandi hvalveiða Íslendinga.
Þingmennirnir vilja að spurt verði um það hvaða áhrif hvalveiðar Íslendinga hafi á sölu á íslenskum vörum á mörkuðum í þessum löndum, ferðamenn sem koma til Íslands eða hafa hug á því og vörumerkið Ísland. Fyrsti flutningsmaður er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
„Ímynd Íslands á alþjóðavísu og hugmyndir ferðamanna sem hingað koma um landið eru samofnar þeim breytingum og hraða á upplýsingamiðlun sem átt hefur sér stað undanfarinn áratug með tilkomu samfélagsmiðla. Það er því mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna að gerð sé ítarleg athugun á viðhorfi þeirra þjóða sem helst koma hingað til hvalveiða og hvort þau viðhorf komi til með að hafa áhrif á vilja fólks til að ferðast til landsins.“