Ók á 143 km hraða

Hraðakstur er ein af orsökum alvarlegra umferðarslysa.
Hraðakstur er ein af orsökum alvarlegra umferðarslysa. mbl.is/​Hari

Um tuttugu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. 

Einn þeirra var jafnframt grunaður um ölvun við akstur og að framvísa fölsuðu ökuskírteini.

Sá sem hraðast ók af þessum ökumönnum mældist á 143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert