Rannsókn á eldsupptökum í Seljaskóla stendur enn yfir. Reiknað er með að niðurstöður liggi fyrir á næstu dögum, vonandi fyrir helgi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tók við vettvangi á sunnudaginn. Eldur kom upp í Seljaskóla aðfaranótt sunnudags síðastliðins. Eldurinn kviknaði í þaki í einu húsi skólans sem er 400 fermetra rými með sex kennslustofum.