Búið er að opna fjöldahjálparstöð á Kirkjubæjarklaustri vegna rútuslyssins sem varð á Suðurlandsvegi við Hofgarða, skammt norðan við Fagurhólsmýrar, rétt eftir klukkan 15 dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar á að lenda þar á hverri stundu og óskað hefur verið eftir að frekari búnaður verði sendur frá Reykjavík.
„Það er alveg augljóst að þetta er alvarlegt slys,“ segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins Landsbjargar, í samtali við mbl.is. Hann getur ekki sagt um fjölda slasaðra, en unnið er að koma þeim í burtu. Búið að kalla út viðbragðsaðila frá Selfossi og alveg austur á Höfn, auk þess sem viðbragðsaðilar hafa farið af stað úr Reykjavík.
Staðfest er að 32 farþegar voru um borð, auk ökumanns, en rútan valt út fyrir veg. Rútan var á vegum rútufyrirtækisins Trex og voru farþegarnir erlendir ferðamenn. Það staðfestir framkvæmdastjóri fyrirtækisins við mbl.is.
„Það er þónokkur viðbúnaður á vettvangi. Menn eru að greiða úr, forgangsraða þeim slösuðu og skipuleggja flutning þeirra af vettvangi. Samhæfingarstöðin í Reykjavík var virkjuð sem samhæfir aðgerðir og skipuleggur hvert sjúklingar fara,“ segir Davíð Már.
Þá hefur verið óskað eftir því að frekari búnaður verði fenginn á staðinn frá Reykjavík og mun Landhelgisgæslan annast þann flutning. Um er að ræða hópslysabúnað sem hjálpar viðbragðsaðilum á vettvangi að vinna sína vinnu. Reiknað er með að búnaðinum verði varpað á slysstað úr flugvél Landhelgisgæslunnar.
„Þetta eru aðgerðir sem eru æfðar mjög reglulega og því miður höfum við fengið of mikið af raunverulegum æfingum. Nú eru viðbragðsaðilar á öllu Suðurlandi að vinna saman og greiða úr stöðunni og koma þeim slösuðu á rétta staði,“ segir Davíð.´
„Það eru allar hendur komnar á dekk og mjög fljótlega voru fyrstu sjúkraflutningamenn af nærliggjandi svæðum komnir á vettvang,“ segir Davíð, en hefur ekki nánari upplýsingar um fjölda slasaðra og hversu alvarleg meiðsli fólksins eru. Ljóst er þó að einhverjir verði fluttir til Reykjavíkur.
Suðurlandsvegur er lokaður við slysstað og ekki liggur fyrir hve lengi lokunin varir.
Uppfært klukkan 17.16:
Fimm eru alvarlega slasaðir og verða fluttir á Landspítalann: