Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna elds í fjölbýlishúsi í Funalind 1 í Kópavogi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa allar tiltækar sveitir verið sendar á vettvang.
Gríðarlegt álag er nú á slökkviliðinu, sem einnig sendi mannskap vegna rútuslyssins sem varð á Suðurlandsvegi í dag.
Ekki liggur fyrir hversu umfangsmikill bruninn er á þessari stundu.