Guðni og Eliza halda vestur

Forsetahjón, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid.
Forsetahjón, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid. mbl.is/Ómar Óskarsson

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og frú Eliza Reid halda í dag til Winnipeg í Manitoba til að taka þar þátt í aldarafmæli Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi, Icelandic National League.

Guðni mun flytja hátíðarræðu í tilefni afmælisins og eiga fundi með Janice Filmon, fylkisstjóra Manitoba, Brian Pallister, forsætisráðherra Manitoba, Brian Bowman, borgarstjóra Winnipeg, og forystumönnum Manitobaháskóla þar í borg, að því er skrifstofa forsetans greinir frá í tilkynningu.

Í ferðinni munu forsetahjónin einnig skoða Mannréttinda­safnið í Winnipeg og heimsækja Nýja-Ísland, byggðarlagið norður af Winnipeg þar sem margir Íslendingar settust að á 19. öld; þau munu blanda geði við aldraða Vestur-Íslendinga og taka þátt í viðburðum sem tengjast þingi Íslendingafélaga í Vesturheimi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert