Karlmaður sem var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni og dóttur í Héraðsdómi Reykjaness í apríl hefur áfrýjað 6 ára dómi sínum til Landsréttar.
Þetta staðfestir Sigríður Friðjónsdóttur ríkissaksóknari við mbl.is, en fyrst var greint frá áfrýjuninni á vef RÚV. Sigríður staðfestir einnig að eiginkona mannsins, sem hlaut fimm ára dóm í málinu, hafi enn ekki áfrýjað, en frestur til þess rennur út 24. maí.
Hjónin hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því að dómur var kveðinn upp 24. apríl síðastliðinn. Ákvörðun var tekin um það að birta héraðsdóminn ekki á vef dómstólsins, til þess að hlífa brotaþola í málinu.
Við þingfestingu málsins í október játuðu hjónin brot sín að hluta, en í ákæru kom fram að þau hefðu brotið kynferðislega gegn dóttur konunnar í sameiningu í febrúar í fyrra og tekið bæði hreyfi- og ljósmyndir af brotunum. Dóttur konunnar voru dæmdar 2,5 milljónir króna í miskabætur.
Hjónin voru sögð hafa framið brotin að dóttur sinni viðstaddri, þannig að hún horfði á foreldra sína brjóta gegn hálfsystur sinni. Með því voru hjónin sögð hafa ógnað velferð stúlkunnar á alvarlegan hátt.
Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni á heimili fjölskyldunnar 807 ljósmyndir og 29 myndskeið sem sýndu börnin á kynferðislegan hátt.
Einnig var hann ákærður fyrir brot á vopnalögum þar sem á heimili hjónanna fannst mikið af eggvopnum, meðal annars 50 sentimetra langt sverð, butterfly-hnífur, tveir stunguhnífar, kasthnífur og slöngubyssa.