Ríkinu ber að greiða fyrrverandi sameigendum sínum að hverasvæðinu Geysi í Haukadal um 1,2 milljarða króna, með vöxtum og verðbótum, samkvæmt yfirmati sem gert var á verðmæti eignarinnar.
Er það svipað og kom út úr upphaflegu mati en ríkið vísaði því til yfirmats. Matið er bindandi fyrir báða aðila, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Þegar ríkið keypti hlut einstaklinganna sem áttu tvo þriðju Geysissvæðisins var ákveðið að dómkveðja matsmenn til að ákvarða kaupverðið. Niðurstaða yfirmats er nú fengin og er þá lokið áratuga deilum um eignarhald á þessari náttúruperlu.