Tveir af átta umsækjendum um embætti landsréttardómara eru í hópi fjögurra dómara sem Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, skipaði í stað þeirra fjögurra sem hæfisnefnd mat hæfasta á fimmtán manna lista. Það eru Ásmundur Helgason og Ragnheiður Bragadóttir.
Embættið var auglýst laust eftir að Vilhjálmur H. Vilhjálmsson sagði starfi sínu lausu í byrjun mánaðarins vegna aldurs. Stefnt er að því að skipa í embættið frá og með 1. september 2019 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.
Dómararnir fjórir hafa ekki tekið þátt í störfum Landsréttar eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í mars að dómarar við Landsrétt hefðu verið ólöglega skipaðir. Þrír voru starfandi við dómstólinn en Ragnheiður er í námsleyfi til 30. júní. Þau halda launum sínum á meðan þau sinna ekki störfum.
Þá eru þrír af þeim fjórum sem voru ekki ráðnir þegar stöðurnar voru auglýstar á sínum tíma meðal umsækjenda; Ástráður Haraldsson, Jón Höskuldsson og Eiríkur Jónsson. Allir hafa þeir farið í mál við ríkið eftir að þeir fengu ekki stöðu dómara við Landsrétt.
Lista yfir umsækjendurna átta má sjá hér að neðan: