Flogið frá Akureyri til Amsterdam næsta vetur

Fyrsta flug Voigt Travel og Transavia til Akureyrar var í …
Fyrsta flug Voigt Travel og Transavia til Akureyrar var í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Transavia og Voigt Travel bjóða upp á flug frá Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið verður á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar. Farnar verða alls átta ferðir. Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel, greindi frá þessu um leið og fyrsta ferð Transavia með ferðamenn á vegum Voigt Travel frá Rotterdam til Akureyrar lenti í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Flugleiðin er afrakstur viðamikils samstarfs Transavia og Voigt Travel. Flugfélagið hefur flogið til Lapplands í Finnlandi og Svíþjóð og norðurhluta Noregs um árabil fyrir Voigt Travel. Nú hefur Íslandi verið bætt við lista áfangastaða þess við heimskautsbauginn. 

„Sem ferðaskrifstofa þurfum við stöðugt að skapa okkur sérstöðu,“ þetta er haft eftir Cees van den Bosch, forstjóra Voigt Travel, í tilkynningu. Hann var meðal farþega í þessu flugi til Akureyrar. 

Voigt Travel er hollensk ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýraferðum til nyrstu hluta Evrópu. Það er sú ferðaskrifstofa í heiminum sem býður upp á flest bein flug til heimskautasvæðisins í Evrópu.

„Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það. Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. Norðurhluti Íslands er enn að miklu leyti ósnortinn og þar má finna alveg jafnmikið af fossum, svörtum ströndum, eldfjöllum og leirböðum og á Suðvesturlandi,“ segir hann jafnframt.  

„Vikulegt flug Transavia fyrir Voigt Travel milli Rotterdam og Akureyrar í sumar skiptir sköpum fyrir okkur og þróun okkar sem áfangastaðar. Við erum mjög ánægð með samstarfið við Voigt Travel sem veitir gestum okkar tækifæri til að komast í tæri við alla þá ósviknu og spennandi upplifun sem Norðurland hefur upp á að bjóða,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri á Markaðsstofu Norðurlands, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert