Jón Gunnar skipaður forstjóri Samgöngustofu

Jón Gunnar Jónsson, nýskipaður forstjóri Samgöngustofu.
Jón Gunnar Jónsson, nýskipaður forstjóri Samgöngustofu. Ljósmynd/Aðsend

Jón Gunnar Jónsson var í dag skipaður forstjóri Samgöngustofu frá og með 6. ágúst. Hann hefur verið stjórnandi síðustu 30 ár, síðast sem framkvæmdastjóri Actavis á Íslandi. Auglýst var eftir forstjóra, þótt Þórólfur Árnason, núverandi forstjóri stofnunarinnar, hafi ekki sagt starfi sínu lausu. Var hann einnig á meðal 23 umsækjenda um starfið.

Jón Gunnar er með M.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Technical University of Denmark og B.Sc.-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Áður en hann var hjá Actavis starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá Alcan á Íslandi og á Englandi og sem framleiðslustjóri Sláturfélags Suðurlands.

Umsækjendur um embætti forstjóra Samgöngustofu voru 23. Í greinargerð hæfnisnefndar eru tilgreindir fimm umsækjendur sem nefndin telur hæfasta til að gegna umræddu starfi og var Jón Gunnar einn þeirra. Í mati nefndar, eftir yfirferð umsagnargagna og viðtöl, fékk Jón Gunnar flest stig þeirra fimm sem nefndin mat hæfasta. Ráðherra tók viðtöl við þá fimm einstaklinga sem nefndin mat hæfasta og var það mat hans að Jón Gunnar væri best til þess fallinn að gegna starfinu.

Í nefndinni sátu Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við HÍ, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, Guðrún Gísladóttir, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, og Helgi Valberg Jensson, yfirlögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert