„Það er alltof mikið af krökkum á vespum sem aka um án hjálma, eru að reiða. Ekki bara reiða einn heldur tvo, þrjá jafnvel,“ segir Snigillinn Guðrún Ámundadóttir en Bifhjólasamtökin standa nú fyrir átaki, í samstarfi við Sjóvá og Samgöngustofu, þar sem markmiðið er að fræða unglinga um hætturnar sem fylgja því að geysast um göturnar.
Hún bendir á að það sé hreinlega ólöglegt að reiða farþega á hjólunum fyrir 20 ára aldur en einnig þá augljósu hættu sem fylgi því að keyra vespu á 50-80 km/klst. Það er hraðinn sem vespur geta náð sé innsigli rofið sem heldur hraðanum á vespunum í kringum 20 km/klst. Á fundi með krökkum í Hörðuvallaskóla í morgun var augljóst að það er nokkuð almenn vitneskja á meðal unglinga.
Í myndskeiðinu er kíkt á fundinn með krökkunum. Fjölmargir unglingar í skólanum fara um á vespum en fjöldi þeirra hefur margfaldast á götum og göngustígum á síðastliðnum árum.
Skemmst er að minnast þess að litlu mátti muna að stórslys yrði á gatnamótum Hamrahlíðar og Kringlumýrarbrautar í fyrradag þegar ökumaður á vespu var á miklum hraða á gangstéttinni og þurfti hjólreiðamaður að hafa sig allan við til þess að forðast harðann árekstur.