Kanna ávinning af sameiningu

Ferðamenn við Mývatn í Skútustaðahreppi.
Ferðamenn við Mývatn í Skútustaðahreppi. mbl.is/Golli

Á fundum sveitarstjórna Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar í morgun var samþykkt samhljóða að hvort sveitarfélag skipi þrjá fulltrúa og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal ávinning af sameiningu sveitarfélaganna. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu sveitarfélaganna.

Þar segir að markmiðið sé að kortleggja sameiningu sveitarfélaganna með það fyrir augum að hún leiði til bættrar þjónustu, öflugri stjórnsýslu og aukins slagkrafts við að ná árangri í byggða-, atvinnu- og samgöngumálum.  

Sameinað sveitarfélag yrði stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli, eða rétt rúmlega 12 þúsund ferkílómetrar. Á svæðinu búa nú hátt í 1.500 manns.

„Að mati sveitarstjórna Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar er skynsamlegt að sveitarfélögin hefji formlegar sameiningarviðræður sem munu leiða til þess að tillaga um sameiningu verði lögð fyrir íbúa í atkvæðagreiðslu. Á þann hátt er valdið sett í hendur íbúanna. Tillagan verður unnin með virkri þátttöku íbúa m.a. á íbúafundum þar sem tekin verður umræða um tækifæri og áskoranir sem geta falist í sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga. Hlutverk kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélaganna er að undirbúa tillöguna eins vandlega og kostur er og kynna verkefnið svo íbúar geti tekið upplýsta ákvörðun, líkt og segir í bókun beggja sveitarstjórna,“ segir í fréttatilkynningu sveitarfélaganna.

Stefnt skal að því að samstarfsnefndin skili áliti sínu til sveitarstjórna fyrir lok næsta árs, en nefndinni verður falið að setja verkefninu nánari verkáætlun og tímaramma.

Sveitarfélögin þegar í miklu samstarfi

Helgi Héðinsson, oddviti sveitarstjórnar Skútustaðahrepps, segir að skynsamlegt sé að skoða sameiningu þessara tveggja nágrannarsveitarfélaga.

„Skútustaðahreppur og Þingeyjarsveit hafa átt í farsælu samstarfi sín á milli, m.a. um skipulags-og byggingamál og brunavarnamál og eru auk þess aðilar að ýmsum samstarfsverkefnum. Í Skútustaðahreppi búa um 500 íbúar og um 900 í Þingeyjarsveit. Við teljum að ýmis tækifæri geti falist í því að sameina sveitarfélögin tvö í eitt öflugra sveitarfélag, með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi. Sameinað sveitarfélag hefði aukinn slagkraft og styrk til að ráðast í mikilvæg samfélagsverkefni,“ er haft eftir Helga í fréttatilkynningu.

Frá Laugum í Þingeyjarsveit.
Frá Laugum í Þingeyjarsveit. mbl.is/Einar Falur

Arnór Benónýsson, oddviti Þingeyjarsveitar, segir eðlilegt að þessi tvö sveitarfélög, sem nú þegar eiga í samstarfi á ýmsum sviðum, skoði kosti og galla sameiningar.

„Fulltrúar sveitarfélaganna hafa átt viðræður um að leggja fram tillögu um sameiningu sveitarfélaganna tveggja í atkvæðagreiðslu meðal íbúa. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur markað þá stefnu að innan fárra ára verði ekkert sveitarfélag á Íslandi með færri en 1.000 íbúa. Sú stefna er byggð á skýrslunni Staða og framtíð íslenskra sveitarfélaga, sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið gaf út í júlí 2017. Okkur finnst skynsamlegt að fara strax í formlegar viðræður um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna og vera á undan straumnum. Við göngum til þessa samtals með þá trú að í sameiningu þessara sveitarfélaga geti falist tækifæri til sóknar fyrir svæðið,“ er haft eftir Arnari í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að fulltrúar sveitarfélaganna hafi átt fundi með fulltrúum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að fá upplýsingar um aðkomu ráðuneytisins og stuðning Jöfnunarsjóðs við verkefnið.

Kynningarfundir í næstu viku

Aðalmenn Skútustaðahrepps í samstarfsnefndinni eru  Helgi Héðinsson oddviti, Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir og Halldór Þorlákur Sigurðsson en varamenn eru Friðrik Jakobsson og Elísabet Sigurðardóttir.

Aðalmenn Þingeyjarsveitar í nefndinni eru Arnór Benónýsson oddviti, Margrét Bjarnadóttir og Jóna Björg Hlöðversdóttir en varamenn eru Árni Pétur Hilmarsson og Hlynur Snæbjörnsson.

Sveitarstjórar sveitarfélaganna, Þorsteinn Gunnarsson í Skútustaðahreppi og Dagbjört Jónsdóttir í Þingeyjarsveit, munu starfa með samstarfsnefndinni.

Stefnt er að kynningarfundum 20. júní í Félagsheimilinu Skjólbrekku í Skútustaðahreppi kl. 17 og í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit kl. 20. Á fundunum verður ferli verkefnisins kynnt og íbúum gefst tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri strax í upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert