Nýr og glæsilegur Herjólfur kom til Vestmannaeyja undir kvöld í gær eftir siglingu frá borginni Gdynia í Póllandi.
Áætlað er að ferjan hefji siglingar milli lands og Eyja í kringum næstu mánaðamót. Mun áhöfnin þá hafa reynt skipið og undirbúið það fyrir almennar siglingar með farþega.
Nýr Herjólfur ristir grynnra en sá gamli.