Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Kolbrún K Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, eru á meðal umsækjenda um starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Alls sóttu 45 um en 7 drógu umsókn sína til baka. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EFA) verða veitt í Hörpu í desember 2020. Verkefnið er viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar og er hátíðin haldin í nánu samstarfi og samráði við Evrópsku kvikmyndaakademíuna.
Búast má við að hátíðin laði til sín fjölmarga erlenda gesti víða að úr kvikmyndaheiminum en til stendur að vera með fjölmarga hliðarviðburði sem tengjast kvikmyndum og kvikmyndagerð.
Umsækjendurnir eru:
Aðalheiður Dögg Finnsd. Helland |
Framkvæmdastjóri |
Anna Katrín Guðmundsdóttir |
Verkefna- og viðburðastjóri |
Arnbjörn Ólafsson |
Forstöðumaður |
Ása Fanney Gestsdóttir |
Menningarstjórnandi |
Ásmundur Jónsson |
Framkvæmdastjóri og útgefandi |
Ásta Sól Kristjánsdóttir |
Framkvæmdastjóri |
Berglind Rún Torfadóttir |
Virkniþjálfi |
Birna Hafstein |
Formaður Félags íslenskra leikara |
Bryndís Pjetursdóttir |
Verkefnastjóri |
Carolina Salas Munoz |
Framleiðandi og verkefnisstjóri |
Desirée Dísa Ferhunde Anderiman |
Verkefnastjóri |
Elva Guðrún Gunnarsdóttir |
Efnahags- og viðskiptafulltrúi |
Erna Ýr Guðjónsdóttir |
Ljósmyndari |
Greipur Gíslason |
Ráðgjafi |
Grímur Atlason |
Verkefnastjóri |
Guðný Káradóttir |
Ráðgjafi |
Guðrún Helga Jónasdóttir |
Dagskrárstjóri heimildamynda/Verkefnastjóri |
Halldór Gunnlaugsson |
Viðskiptafræðingur |
Heiðrún Þráinsdóttir |
Svæðisstjóri |
Hjörtur Grétarsson |
Framkvæmdastjóri |
Inga Björk Sólnes |
Kvikmyndagerðarkona |
Ingi Thor Jónsson |
Viðburðastjóri |
Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson |
Sviðlistamaður og listrænn framleiðandi |
Jónína Sigríður Pálsdóttir |
Verkefnastjóri |
Kolbrún K Halldórsdóttir |
Leikstjóri |
Linda Björk Sumarliðadóttir |
Verkefnastjóri |
Lovísa Óladóttir |
Framkvæmdastjóri |
Marta Monika Kolbuszewska |
Rekstrarstjóri |
Ottó Davíð Tynes |
Heimspekingur |
Óðinn Albertsson |
Verkefnisstjóri MPM, IPMA-C |
Ragnheiður Elín Árnadóttir |
Fv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra |
Rúrí Sigríðardóttir Kommata |
Þjónustufulltrúi og aðstoðarsýningastjóri |
Sandra Stojkovic Hinic |
Verkefnastjóri |
Sigríður Agnes Jónasdóttir |
Deildarstjóri viðburða |
Sigríður Inga Þorkelsdóttir |
Markaðsfulltrúi |
Sigrún Gréta Heimisdóttir |
Innanhúsarkitekt |
Sigurður Kaiser Guðmundsson |
Framkvæmdastjóri og sviðshönnuður |
Svanhildur Sif Halldórsdóttir |
Yfirritstjóri |