Styrkja bakkavörn við Hálslón

HálslónKárahnjúkavirkjun var gangsett 2007.
HálslónKárahnjúkavirkjun var gangsett 2007. mbl.is/RAX

Ráðist verður í framkvæmdir við bakkavörn á bakka Hálslóns við norðurenda Kringilsárrana í lok mánaðarins, til að bregðast við rofi sem þar hefur átt sér stað frá því rekstur Kárahnjúkavirkjunar hófst 2007.

Gert er ráð fyrir því að framkvæmdirnar taki um 10 daga. Í stjórnunar- og verndaráætlun 2017-2026 fyrir Kringilsárrana er tekið fram að séu bakkavarnir nauðsynlegar skuli slíkar framkvæmdir ákveðnar af Umhverfisstofnun í samstarfi við Landsvirkjun og Landgræðsluna, að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar.

Á samráðsfundi um rannsóknir og vöktun í Kringilsárrana þann 28. nóvember 2018 lagði Landsvirkjun til að gert yrði tilraunaverkefni með allt að 180 metra bakkavörn við norðurenda Kringilsárrana. Umhverfisstofnun gaf út leyfi fyrir framkvæmdinni í apríl sl. og fyrir liggur framkvæmdaleyfi frá Fljótsdalshéraði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert