Ræddu neyð flóttamanna og hatursorðræðu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ásamt Filippo Grandi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ásamt Filippo Grandi. Ljósmynd/Forsætisráðuneytið

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Michelle Bachelet, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna (OHCHR).

Á fundinum með Filippo Grandi ræddu þau m.a. um samstarf Íslands við Flóttamannastofnun SÞ, vaxandi fjölda og neyð flóttamanna í heiminum og með hvaða hætti alþjóðasamfélagið geti brugðist við núverandi þróun, að því er segir í tilkynningu.

Þá ræddu þau einnig móttöku flóttafólks á Íslandi, meðal annars um hóp LBGT-flóttafólks frá Kenýa sem er væntanlegur til Íslands á næstunni en UNHCR hefur hrósað íslenskum stjórnvöldum fyrir það hvernig staðið er að móttöku flóttamanna hér á landi.

Ræddu afleiðingar vaxandi útlendingahaturs

Á fundi forsætisráðherra með Michelle Bachelet ræddu þær um stöðu mannréttindamála og afleiðingar vaxandi útlendingahaturs og hatursorðræðu. Þá snerust umræðurnar ekki hvað síst um stöðu jafnréttismála, sem nú eru til umræðu í yfirstandandi lotu Mannréttindaráðsins.

„Það var töluverð áskorun fyrir Ísland að taka sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í fyrra en ég tel að við höfum sett mikilvæg mál á dagskrá, bæði á sviði kvenréttinda og réttinda hinsegin fólks. Samstarf okkar við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er okkur mikilvægt og dýrmætt að finna að okkar framlag í þeim efnum skiptir máli,“ segir Katrín í tilkynningunni.

Þá hélt forsætisráðherra ávarp við opnun sýningar um umhverfisbreytingar í Palais des Nations. Sýningin er skipulögð í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar í Genf og Fiji með þátttöku smárra eyríkja frá öllum heimshornum.

Katrín er í þriggja daga heimsókn í Genf í tengslum við júnílotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem jafnréttismál eru í brennidepli. Forsætisráðherra mun m.a. ávarpa mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna, taka þátt í árlegri umræðu mannréttindaráðsins um jafnréttismál og funda með yfirmönnum alþjóðastofnana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert