Banaslys varð á Ingjaldssandsvegi á Vestfjörðum í gær þegar veghefill sem var við vegheflun hafnaði utan vegar.
Stjórnandi veghefilsins lést, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.
Tilkynning um slysið, á Sandsheiði í Gerðhamarsdal, barst laust fyrir klukkan 18 í gær.
Tildrög slyssins eru ókunn og hefur lögreglan á Vestfjörðum málið til rannsóknar, með aðstoð rannsóknarnefndar samgönguslysa og Vinnueftirlits.
Ekki er hægt að birta nafn ökumanns að svo stöddu.