176 ökumenn sem lögreglan fylgdist með á Hringbraut á tveggja daga tímabili í vikunni reyndust aka of hratt. Um er að ræða vegkafla á milli Sæmundargötu og Ánanausta þar sem hámarkshraði var í vor lækkaður úr 50 km/klst í 40 km/klst í kjölfar þess að ekið var á barn á Hringbraut við gatnamótin við Meistaravelli í janúar.
Alls fóru 1077 ökutæki þessa aksturleið á meðan hraðamæling lögreglu stóð yfir og reyndust 176 brotlegir. Fyrri daginn var meðalhraði hinna brotlegu 54 km/klst og sá sem hraðast ók mældist á 67. Í gær mældist meðalhraði hinna brotlegu 53 km/klst og sá sem hraðast ók mældist á 64 km/klst.
Brothlutfallið reyndist 16% og er nú er nokkru hærra en við fyrri hraðamælingar á þessum vegkafla þegar leyfður hámarkshraði var 50, en þá var það 5 - 8%, að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan mun áfram verða við umferðareftirlit á þessum sem öðrum stöðum í umdæminu.